When in Denmark

My daughter and I went on a little girls’ trip to Copenhagen in July. The purpose of the trip was to visit relatives, shop for clothes, go to McDonald’s and, of course, spend some quality mother-daughter time together. I don’t think our family ever takes “normal” photos of ourselves in everyday life, and this trip was no exception.

Ég og dóttir mín fórum í stelpuferð til Köben í júlí. Tilgangur ferðarinnar var að hitta ættingja, versla föt, fara á McDonalds og auðvitað eiga mæðgna gæðastundir saman. Við fjölskyldan tökum held ég aldrei “venjulegar” myndir af okkur svona dags daglega og það var engin undantekning á því í þessu ferðalagi okkar.

I made an honest attempt to visit Woolstock, my favourite yarn shop in Copenhagen. Unfortunately, I was unlucky enough not to realise that they’re closed on Mondays, so we were met with a locked door. I accepted my fate and figured there would be no yarn shop visits on this Copenhagen trip.

Ég gerði heiðarlega tilraun til að heimsækja Woolstock uppáhalds garnbúðina mína í Köben. En var svo óheppin að fatta ekki að það er lokað þar á mánudögum svo við komum að læstum dyrum. Ég sætti mig þar með við að það yrðu engar garnbúðir heimsóttar í þessari Köben ferð.

I was, however, very lucky that my favourite second-hand shop in Nørrebro had reopened. It was closed when I visited last year, so I went to a few other second-hand shops instead, but none of them came close to this one. I highly recommend it if you love rummaging through old stuff.

Ég var hins vegar svo heppin að uppáhalds Genbrug búðin mín í Nørrebro hefur verið opnuð aftur. Hún var lokuð þegar ég fór í fyrra og fór ég í nokkrar aðrar en engin þeirra jafnaðist á við þessa. Mæli allan daginn með henni ef þið elskið að gramsa í gömlu dóti.

Before it closed, there was a basement, and the basement was FULL of vintage crochet. The basement is closed now, but I found a little room up there with some old crochet pieces and other textiles. Naturally, I bought some because I’m slightly obsessed with these old crochet doilies and have a rather embarrassing amount of them. But they do have a purpose — I use them a lot as inspiration for my own crochet.

Áður en henni var lokað þá var kjallari og í kjallaranum var FULLT af gömlu hekli. Kjallarinn er lokaður núna en ég fann lítið herbergi þarna þar sem var eitthvað af gömlu hekli og öðrum textíl. Ég keypti mér eitthvað af hekli því ég er jú með þráhyggju fyrir svona gömlum dúllum og á vandræðalega mikið af þeim. En þær hafa sinn tilgang því ég nota þær mikið sem inspo í hekli.

On my way to my favourite second-hand shop, I saw the wall again — the same wall I saw the last time I was in Copenhagen, and the one that inspired me to crochet the Elías blanket. On that trip, I didn’t take a photo of the wall or the pattern on it, but I couldn’t get it out of my head, so I ended up crocheting a blanket inspired by it.

Þegar í var að labba í Genbrug búðina mína þá sá ég aftur vegginn sem ég sá síðast þegar ég var í Köben og heklaði Elías teppið eftir. Í þeirri ferð tók ég ekki mynd af veggnum og mynstrinu á honum en gat ekki losnað við það úr hausnum og heklaði því teppi eftir því.

I love walking, both in cities and in nature. One of my favourite things about walking around cities is street art — or what I call street art and some people might call a mess. If I see something that makes me happy, I take a photo of it: stickers, graffiti, random little things, all sorts of stuff.

Ég elska að labba, bæði í borgum og nátturinni. Það sem ég elska mest við að labba í borgum er götulist, eða það sem ég kalla götulist og sumir kalla það sóðaskap. Ef ég sé eitthvað sem gleður mig þá tek ég mynd af því, límmiðum, veggjakroti og bara alls konar.

I don’t really post many of these photos because I’m pretty sure they don’t impress other people nearly as much as they impress me. But on this Copenhagen trip, I came across one of the most amazing pieces of graffiti I’ve ever seen. It was by the Nørrebro Center train station. Someone had made a huge beaded artwork of Danish S-trains and attached it to a wall. Absolutely brilliant.

Ég er ekkert mikið að pósta þessum myndum mínum því þær vekja pottþétt ekki jafn mikla hrifningu hjá öðrum og mér. En í þessari Köben ferð fann ég eitt magnaðasta graff sem ég hef nokkurn tímann séð. Og það var við lestarstöðina Norrebro Center. Einhver var búin að perla risastórt listaverk af dönskum S lestum og líma það upp á vegg. Sturlað flott.

Everything else was just some basic stuff that made me smile, so it gets to join the party in this post too. I’ll end this blog with a selfie I accidentally took when I opened my phone to take a photo and was greeted by my own face instead of what it was I had bent down to photograph. Gotta love when that happens.

Allt annað var bara eitthvað basic sem fékk mig til að brosa og fær því að vera memm í þessari færslu. Enda þetta á selfie sem ég tók þegar ég opnaði símann til að taka mynd og sá bara sjálfa mig en ekki það sem ég var að beygja mig yfir til að taka mynd af. Elska þegar það gerist.

Until next time,
Elín

Þar til næst.
Elín

Leave a comment

I’m Elín

Crocheter. Mother of 3. Yarn shop owner. Creative. Crochet pattern designer. Start a lot of projects – struggle with finishing them.

Let’s connect